Dívurnar
sumar 2008
Mánaðarins
18.04.2009 19:49:08 / eyja_divur

Dívudjamm þann 1.maí....

Jæja, nú fer að koma að dívudjamminu okkar. Ég, Sveinsína og Unnur systir ákvöðum í dag að vera í nefnd fyrir þetta djamm.. Það verða bara einhverjar aðra sem sá um þetta næst. Við erum búnar að ákveða að við borðum allar saman, það væri mjög gott ef við allar borgum 2000 kr. Þá er hægt að kaupa mat, meðlæti, gos, snakk og allt það sem þarf fyrir kvöldið. Sveinsína sendi ykkur öllum sms í dag, það væri mjög gott ef þið mundið látta okkur vita hvort þið ætlið að koma eða ekki.. Við erum líka náttúrulega búnar að ákveða að það verði diskóþema þetta kvöld. Þannig að við allar verðum að fara að finna til diskógallan:whut::whut:Við ákvöðum líka að við mundum hittast hérna heima hjá mér, það er stórt grill hérna sem er hægt að elda allan matinn á í einu... Jæja skrifa meirra þegar við erum búnar að ákveða einhvað meirra sambandi við kvöldið mikla...
                  
Kær kveðja ykkar díva Kristín....

» 9 hafa sagt sína skoðun

05.03.2009 11:33:37 / eyja_divur

Páll Óskar kemur til Eyja :)

Eigum við að ræða það eitthvað að
 
Páll Óskar verður með ball í Höllinni 1.maí :!::!:

Þessa helgi verður diskóhátíðin „DISKÓIÐ LIFIR“ og verðum við Dívur þar fremstar í flokki eða hvað? Ég er allavega sjúk í Palla og læt mig sko alls ekki vanta á ballið með honum. Getum við ekki bara planað að fara saman og gert eitthvað skemmtilegt um kvöldið. Kannski borðað saman og haft skemmtilega leiki eða eitthvað því um líkt. Litlu dúllurnar yrðu með okkur í matnum og sollis og svo bara kannski um 10:00 leytið (eða hvenær sem þið viljið) gætum við byrjað í hvítvíninu heheh :lol:

Ég er svo æst að hitta ykkur bara öllum stundum elsku Dívurnar mínar hehe :*

Við skemmtur okkur heldur betur vel á konukvöldinu þegar hann Palli vinur okkar kom og átti Höllina og allar kjéllurnar féllu að fótum hans hehe...ég er allavega meira en lítið til í þetta.

Endilega commentið á þetta plan 8)

Love you, Love you!!

Kær kveðja 

Sara Björg

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.02.2009 21:47:21 / eyja_divur

Elsku Guðlaug okkar til hamingju með prinsinn :*

Well well well....langt síðan ég hef skrifað blogg hérna á þessa fábrotnu, en þó skemmtilegu, síðu okkar Eyjadíva.

Mig langar nú að byrja á því að óska henni Guðlaugu okkar innlega til hamingju með litla prinsinn:*** Hún eignaðist lítinn dreng í morgun kl. 11:00. Hann var 16 merkur og 52 cm. Enn og aftur elsku Guðlaug okkar til hamingju...kossar og knús frá okkur öllum :*** Ég hlakka svo mikið til að fá að knúsa ykkur mæðgin þegar ég kem til Eyja (væntanlega ekki fyrr en í endan mars).  Hér að neðan má sjá mynd af nýjasta gullinu í vinahópnum, hérna er gæinn um klst. gamall :d



En eins og þið allar vitið að þá er ég fjarri góðu gamni upp á Bifröst að ljúka BS í viðskiptafræði, sem mér finnst alveg rosalega skrítið eitthvað. Það eru þrjú ár síðan ég flutti hingað, að vísu með smá útúrdúr til Ítalíu og Eyja á sumrin
J Þetta er búið að vera ótrúlega fljótt að líða!

Ég hef verið að skoða bloggsíður hjá  öðrum vinkvennahópum heima og mér finnst við Dívurnar ekki vera að standa okkur í stykkinu sko. Erum allt of lélegar að hittast og hafa gaman af. Höfum oft talað um sumarbústaðarferðir, matarpartý og fleira og fleira en ekkert gerist. Að vísu komu fjórar af okkur með börn á síðasta ári sem setti kannski smá strik í reikninginn en engu að síður æðislegt. Ég sakna allra gullmolanna svoooooo mikið og langar sko mestast að knúsa þau núna!!

En ég hef verið að velta svolítið fyrir mér hvort það væri ekki upplagt að plana Eurovision partý. Ég hef verið að skoða ýmislegt sem við getum gert og tekið mér það bersaleyfi að plana smá fyrir okkur J sem þið fáið þó ekki að vita alveg strax. Eins og þið vitið verður Eurovison 2009 haldið þann 16.maí næstkomandi í Moskvu í Rússlandi. Það væri allavega mjög gaman að hafa einn skemmtilegan atburð á dagskrá og þá getum við allar tekið daginn frá og planað flottasta

Eurovision partý sögunnar!!

Endilega kommentið á þetta og segið hvað ykkur finnst og komið með sniðugar uppástungur að skemmtilegu kvöldi.

Ykkar díva

Sara Björg


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.01.2009 21:24:06 / eyja_divur

Jæja, stelpur mínar.....

Jæja, stelpur mínar. Eruð þið að lesa þetta blogg, ef svo er skrifið þá undir þetta blogg.....

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2009 20:44:07 / eyja_divur

Jæja, þá árið liðið...

Jæja, þá er árið. Mér að fara svolítið hvað gerist hjá okkur dívunum á liðinu ári. Svona t.d. komu 4 dívubörn í heiminn árið 2008. Sveinsína og Siggi Árni komu með fyrsta barnið, það er hann Tryggvi Elí. Unnur Dóra og Sævar komu með annað barnið, það er hún Annika. Síðan komu Jessý og Ómar með þriðja barnið, hana Magenu Evey. Síðan komu Sædís og Bjössi með fjórða barnið, það er hann Ívar Kári. Við erum 10 vinkonurnar, já það komu 4 okkar með barn á sama árinu. Geri aðrir betur, en það;);)Það var nú ekki mikið um það á árinu að hittast og fá okkur í glas og hafa gaman af. En það var bara hist frekar og talað saman og allt og ekkert. Já, okkur vinkonum finnst rosalega gaman að hittast allar og hafa gaman af lífinu. Við erum nú búnar að vera duglegar núna í haust að hittast á 2 vikna fresti. Já, við höfðum verið að skiftst á að hafa kaffi um helgar. Síðan höfðum líka verið að hittast minnst einu sinni í viku, bara svona verið að horfa á tvið eða einhvað svoleiðis.En núna í lok nóvember þá förum við 8 af 10 okkar á konukvöld í Höllini. Þá var sko haft gaman, já það var sko geðveikt fjör hjá okkur.Já, við erum sko búnar eiga góða tíma saman á liðnu ári. Mér langar þakka ykkur fyrir frábæra stundir á liðnu ári. Ég vona að við eigum eftir að eiga miklu fleirri frábærar stundir á árinu sem er að ganga í gerð.
                     Kær kveðja ykkar Kristín..

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 14:05:53 / eyja_divur

Sædís er búin að eiga strák...

Já, dívubarn númer 5 er kominn í heiminn. Sædís Eva og Bjössi eru búin að eigast strák. Hann kom í þennan heim um 01.30 í nótt, hann er 12 merkur og 49cm. Ég var að tala við Jessý og hún sagði að hann væri mikið dökk hár og að hann væri algjört æði. Mér langar að óska þeim til hamingju með strákinn sinn. Hlakka geðveikt til að fá að sjá hann.. Kær kveðja ykkar Kristín.. 

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 14:24:47 / eyja_divur

Konukvöld 29. nóv....

Jæja, stelpur mínar... Núna fer að koma að því að við ættum allar að koma saman. Já, við ætlum að fara á konukvöld þannan 29. nóv. Ég ætla að vona að það fari engin að fara að afboða sig núna. Ég er búin að tala við ykkur allar og allar til í það að fara á konukvöldið. Jóhanna og Guðlaug ætla báðar að koma ofan af landi og koma með okkur. Mér er farið að hlakka til að hitta ykkur allar á sama tíma. Það er nefnilega orðinn allt of langur tími síðan að við hittumst allar. Líka þar sem dívur koma saman er ekki til leiðinleg stund. Málið er nefnilega það, að ég á frekar skemmtilegar vinkonur. Já, þið eruð frábærar, skemmtilegar, fyndar og einfallega bara geðveikir djammara. Jæja, stelpur mínar mér langaði bara að minna aðeins á konukvöldið. Ég get eiginlega ekki beðið eftir því....
                       Kær kveðja ykkar Kristín.....
p.s. farið nú að blogga stelpur mínar..............

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 17:59:59 / eyja_divur

Hún á afmæli í dag..

Það á ein eyjadíva afmæli í dag.Já það er hún Sveinsína Ósk okkar á afmæli í dag. Hún á 27 ára afmæli í dag, mér langar að óska henni til hamingju með daginn..Vonandi ertu eftir að eiga góðan dag elsku dúllan mín:haha::haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.09.2008 20:00:11 / eyja_divur

Jessý og Ómar eru búin að eigast stelpu...

Jessý og Ómar eiguðust stelpu í dag, hún er 16 merkur og 52 cm. Ég, Sara Björg og Unnur Dóra förum áðan að skoða hana. Hún er rosalega sæt, það má segja að hún sé svolítið lík honum pabba sínum. Mér langar bara að óska Jessý og Ómar til hamingju með stelpuna sína.

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 20:16:39 / eyja_divur

Halló Halló

Þetta blogg er skrifað á laugardaginn, síðan er bara búin að vera einhvað biluð. Þannig að það náðist ekki að vista inn á síðuna.
Hvað er eiginlega að frétta af ykkur, stelpur mínar? Það er nú allt gott að frétta af mér. Hann pabbi minn fór einmitt í gærmorgunn, hann var hjá okkur Inga Þór í 2 nætur. Hann varð náttúrulega að koma að skoða barnabarnið sitt, hann er svo stoltur með hana. Mamma og pabbi er einmitt svo glöð fyrir því að þau séðu orðin amma og afi lokins. Ég held nú að þau séðu nú ekki enn þá komin niður úr skýunum. Ég er líka mjög skolt af því að verða orðin móðursystir. Ég fer einmitt á hverjum degi að skoða hana, hún er bara svo sæt. Það er bara allir svo glaðir með hana, hún er náttúrulega yndisleg. Síðan fer nú að koma annað dívubarn í heiminn, það eru nú bara 2 1/2 vika í hana Jessý okkar. Núna er maður bara að bíða spennt eftir að sjá hvort það verði stelpa eða strákur. Ég er nú búin að vera að spá mikið í þessu og það kæmi mér nú ekki ávart að Jessý væri með strák. En þetta fer nú allt að koma í ljós, bara að bíða smá tíma lengur. Síðan kemur annað dívubarn í desember, þá á hún Sædís okkar að eiga. Ég ætla nú bara að vona að það séðu eftir að koma fleirri dívubörn í heiminn sem fyrst. Síðan var ég nú að pæla hvort við ættum að reyna að plana einhvað dívudjamm eða einhver hitting. Ég var nú að pæla kannski að reyna að hittast einhvað um jólin eða áramótin. Ég er nú bara að pæla í þessu tíma, af því að þá verðum við líklegast allar heima. Það væri nefnilega gaman ef við mundum fara að ákveða. Þannig að það sé bara búið að ákveða og reyna að hafa einhvað skipulag á þessu. En þetta er nú bara pæling hjá mér, endilega komið með hugmynd. Það væri t.d. gaman ef allar kæmu með hugmyndir hvað væri hægt að gera.  En ég ætlaði nú líka að segja ykkur að hún Guðlaug er nú að fara að byrja í skólanum núna eftir helgi. Þannig að hún fluti suður í morgun, ég verð nú að segja fyrir mig allavegana að ég er eftir að sakna hennar. Við verðum nú bara að vona að hún verði duglega að koma heim um helgar til okkar. En jæja ég veit nú ekki hvað ég að segja ykkur meirra í billi. En það er eitt en, það væri nú gaman að fá blogg frá einhverji annari en mér hérna inn á síðuna okkar. Ef ykkur vantar notanafnið og lykilorðið, hafið þá bara samband við mig.                                           Kær kveðja ykkar Kristín

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 06:56:42 / eyja_divur

Ég er orðin STÓRA frænka...

Ég er orðin stóra frænka, það er komin stúlka í heiminn. Unnur og Sævar eru búin að eigast stelpu. Hún er 15 merkur og 52 cm, ég veit nú ekki hvar hún Unnur geymdi hana eiginlega. Innilega til hamingju með stelpuna ykkar:haha::haha:     Kær kveðja ykkar Kristín.....

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 16:38:47 / eyja_divur

Það er kominn 21.ágúst...

Það er kominn 21.ágúst, Unnur systir er sett í dag. Ég er sko farin að bíða spennt eftir að verða móðursystir. Þetta er samt svolítið skrítið að litla systir mín er að verða mamma. En þetta er eftir að verða svo gaman, ég ætla að vona að hún þurfi ekki að bíða mjög lengi. Ég er allavegana að deyja úr spenning, mér hlakkar svo til að sjá litlu frænku/frænda minn. Ég er mikið búin að pæla hvort þetta sé stelpa eða strákur, en þetta fer nú allt að koma í ljós.. En jæja ég veit ekki hvað ég á að segja ykkur meirra í billi en ég sit inn fréttir, þegar einhvað fer að gerast......
    
    Kær kveðja ykkar Kristín...
                                                  

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.08.2008 00:35:47 / eyja_divur

Jæja, þá er Þjóðhátíðin búin...

Jæja, þá er þessi Þjóðhátíð búin. Ég verð allavegana að segja fyrir mig að þetta var geðveikt skemmtileg Þjóðhátíð. Þetta er bara ein skemmtilegasta Þjóðhátíð sem ég hef farið á. Ég og Ingi Þór skemmtum okkur svo vel, ég held að við höfðum aldreir verið svona lengi í dalinum áður. Mér langar bara þakka ykkur stelpunum fyrir frábæra skemmtun. Núna fer sko að styttast í það að Unnur systir fari að eiga barnið. Ég verð nú að segja að ég er orðin svolítið spennt, ég er alveg að verða stóra frænka:haha::haha: Já, síðan er hún Sveinsína okkar að koma til eyja í nótt. Mér hlakkar svo til að hitta hana, ég er sko búin að sakna hennar og auðvita Tryggva Elí og Sigga Árna líka. Tryggvi Elí er líklegast búinn að stækka síðan ég sá hann síðast, börn eru svo fljótt að stækka. Jæja, stelpur mínar ég veit ekki hvað ég á að segja ykkur meirra í billi. Eitt en farið nú að blogga, stelpur koma svo:þ:þ
                                   Ykkar eyjadíva Kristín...

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 20:15:55 / eyja_divur

Jæja, það er að koma Þjóðhátíð...

Jæja, stelpur mínar það er bara að koma Þjóðhátíð. Það er nú eftir að vanta eina dívu, hana Sveinsínu Ósk. Hún er nú bara að sóla sig með honum Sigga sínum og auðvita honum Tryggva Elí. Og síðan er 3 dívur óléttar, þær Unnur, Jessý og Sædís. Þannig að við hinar verður nú djamma fyrir þær líka, þannig að það á að djamma fram í rauðann dauðann. Ég treysti á ykkur:haha::haha: Ég er nú orðin svolítið spennt fyrir Þjóðhátíðini, er búin að kaupa miðana og allt vín. Þannig að ég er nú bara tilbúin fyrir dalinn. Ég ætla bara að vona að þessi Þjóðhátíð verði einfallega frábær. Ég vona að þið séuð tilbúnar fyrir dalinn líka:lol::lol: Ingi minn er nú að koma heim á morgun af sjónum og er líklegast sko alveg tilbúinn fyrir helgina líka. Jóhanna er nú að koma til okkar Inga á fimmtudaginn, hún hringdi í mig í dag og hún er að deyja úr spenning. Henni hlakkar svo til að hitta okkur allar og skemmta sér með okkur um helgina. Stelpur mínar hvað segið þið, eruð þið tilbúnar fyrir helgina miklu?????
                                    Ykkar Kristín......

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 20:39:58 / eyja_divur

Fyrsta bloggið mitt hérna:)

Hæ sætustu Dívurnar mínar!
Loksins blogga ég hérna, hef reyndar ekki verið með aðgangsoðrið hérna en það var mér að kenna að hafa ekki beðið um það;)
En það er allt gott að frétta af mér hérna í Kópavoginum, er bara alltaf að vinna á sama stað og er nýbyrjuð aftur eftir sumarfíið! Haldiði ekki að þessi Díva hafi bara ekki skellt sér til Tenerife, en ekki fara að búast við því að ég sé eitthvað brún, því NEI, Guð ákvað að ég skildi bara fá freknur en ekki sólbrúnku!!! En þar sem ég er orðinn "fullorðinn manneskja" þá hef ég bara sætt mig við það!!! :d:lol:
En hvað segið þið gott? Það eru ekkert smá æðislegar fréttir sem maður er alltaf að fá af ykkur, til hamingju þið Dívur sem eruð að fara að fjölga mannkyninu!! Það er einmitt það sem vantar, fleiri Dívur eða Dívu-stráka;)
Jæja, mig hlakkar ekkert smá til að hitta ykkur sem flestar á þjóðó!! Ég kem á fimmtudaginn með fyrri ferð og þær sem geta ættu endilega að koma á djammið með mér, Kristínu og Önnu!!! Ég lofa stanslausri skemmtun, "dansa upp á borði" stemningu, "æla í runna" fíling og "muna ekkert daginn eftir" fylleríi:lol:
Sakna ykkar og hlakka til að koma á eyjunna fögru
Jóhanna Eyja_Díva:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 49815
Klukkan
Könnun
Á að fara á diskó með Páll Óskari, þann 1.maí?
Auðvita, mæti ég
2 atkvæði

Ætli það ekki..
0 atkvæði

Kannski...
0 atkvæði

nei, nei...
2 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 4
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
RSS tengill